Takk Sveinn!

Frá víkingaöld hafa Íslendingar verið þekktir fyrir að vera brautryðjendur. Þetta er raunveruleg saga um ósvikinn brautryðjanda sem hafði mikil áhrif á stafræna væðingu íslenskra tónlistarskóla. Hann skildi eftir sig stór spor, sem við með stolti munum reyna að fylla.

Sveinn Eyþórsson er maður sem öll ykkar ættu að kannast við. Hann hefur lagt ómetanlega vinnu í að færa íslenska tónlistarskóla inn í stafrænan nútíma með því að þróa SchoolArchive eftir óskum og þörfum íslenskra tónlistarskóla.

Þetta byrjaði allt með því að í byrjun 9. áratugarins eignaðist Sveinn sína fyrstu tölvu, Commodore 64 leikjatölvu. Á þeim tíma var hægt að kaupa tölvuleikjablöð, þar sem sýnt var hvernig  hægt var að búa til forrit í slíkum tölvum. Þetta dundaði Sveinn sér við og þar með var áhuginn á frekari forritun kviknaður.  

Eftir að hafa lokið gítarnámi á Spáni fór Sveinn að kenna við Tónlistarskóla Garðabæjar. Á þeim tíma höfðu Sveinn og pabbi hann keypt sér saman Macintosh tölvu þar sem þeir fiktuðu við að skrifa nótur. Hann prufaði sig áfram í að búa til kerfi fyrir tónlistarskóla, þar sem einnig var hægt að prenta út skýrslur. Það reyndist síðan þægilegra en þáverandi kerfi Tónlistarskóla Garðabæjar, og 1988-89, fór skólinn eingöngu að notast við kerfið hans Sveins. Það fréttist út og fleiri skólar tóku að nota það og þótti mikill tímasparnaður.

Sveinn bætti síðar við hliðarforriti sem var ætlað kennurum, það þýddi að kennarar höfðu aðgang að tölvu á kennarastofu, þar sem þeir gátu fyllt út skýrslur beint og því minnkaði útprentunarþörf.

Þetta "dútl" varð til þess að Sveini langaði að læra meira og úr varð að hann fór til Svíþjóðar í frekari nám í kerfisfræði. Að námi loknu og öllu fróðari, bjó Sveinn til nýtt kerfi í Microsoft Access, ætlað PC, þar sem  hægt var að gera gagnagrunn. Það kerfi var miklu öflugra og innihélt innbyggðar skýrslur. Tímafrekasta vinna Sveins fólst í því að innleiða SchoolArchive í skólunum, hann þurfti oft að ferðast landshluta á milli til að setja upp SchoolArchive og þjálfa fólk í að nota það. Þegar SchoolArchive fór á netið árið 2008, þá minnkaði aðeins sú vinna, því hann þurfti ekki lengur að vera á staðnum til að setja upp kerfið, en hann hélt þó áfram að koma og kenna fólki á kerfið.

Sveinn hefur alla tíð reynt að koma til móts við notendur SchoolArchive. Ef einhver kom til hans með vandamál þá fór hann bara af stað. Hann bjó til grunnlausn að einhverju og þróaði svo áfram með viðkomandi skóla og öðrum skóla til að betrumbæta lausnina. Hans aðalmarkmið var að vinna með skólunum og leysa þau vandamál sem upp komu.

 

Dæmi um óskir sem hafa komið frá tónlistarskólunum:

 Þrátt fyrir alla þessa vinnu var SchoolArchive þó alltaf aukastarf. Þetta var starf sem Sveinn sinnti á kvöldin, um helgar og í fríum. Eftir að hann lauk sínu námi í Svíþjóð fór hann að vinna hjá Reiknistofu bankanna og seinna á verkfræðistofu. Í dag vinnur Sveinn hjá Seðlabanka Íslands. Á seinustu árum höfðu skólar sem notuðu SchoolArchive fjölgað úr 15 í 44. Það kom að þeim tímapunkti að Sveinn stóð frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun að annaðhvort að þurfa að hætta í bankanum og sinna SchoolArchive í fullu starfi, eða hætta með SchoolArchive. Niðurstaðan var að hætta með SchoolArchive en ekki áður en hann hafði einhvern til að taka við kyndlinum og úr varð að hann seldi SchoolArchive til SpeedAdmin/Let‘s Learn to Play, en það var ekki fyrr en hann vissi að SpeedAdmin hafði sömu ástríðu fyrir tónlistarnámi eins og hann sjálfur.

Nú velta kannski margir fyrir sér hvað Sveinn gerir þá í frítíma sínum núna þegar hann þarf ekki lengur að sinna tónlistarskólum landsins? Sveinn hefur loksins tíma fyrir húsið sitt, hundinn, köttinn og barnabörnin! Hann hlakkar til að komast í frí og heimsækja fjölskylduna án þess að þurfa að taka vinnunna með. Svo njóttu Sveinn!

Fyrir hönd okkar hjá Let‘s Learn to Play langar okkur að segja stórt TAKK! Takk fyrir þitt framlag, takk fyrir alla þessa ómetanlega vinnu. Við upplifum að íslensku tónlistarskólarnir eru góðu vanir og við munum nota það sem við höfum lært af SchoolArchive til að byggja enn betra SpeedAdmin.

Book online!