Michael Hamann

Stjórn með samhljóm

 

SpeedAdmin hefur nýlega tilnefnt nýjan framkvæmdastjóra til að setja tóninn.

„Við ætlum að skapa hagnýtar lausnir og búa til úrræði til að styrkja menningarlíf“ segir Michael, sem deilir sýn sinni á SpeedAdmin stuttu eftir að hann var skipaður framkvæmdastjóri. Hann leggur áherslu á áframhaldandi notandamiðaða nálgun og að vera opinn fyrir þörfum viðskiptavina, sem er nauðsynlegt fyrir framtíðarárangur fyrirtækisins.

Sem stjórnandi leggur Michael áherslu á gegnsæi og samræðu. Hann þekkir gildi náinnar samvinnu bæði hvað varðar starfsmenn og viðskiptavini, að það muni tryggja að SpeedAdmin haldiáfram að skila framúrskarandi árangri. Þetta endurspeglar þá trú hans að fyrirtæki dafni best þegar tengsl eru á milli stjórnenda, starfsmanna ogviðskiptavina.

 

Framsækin framtíð!

Stafræn væðing oggervigreind (AI) eru mikilvægur hluti af framtíðarsýn Michaels um framsækna framtíð í tónlistar- og menningarskólum. Samkvæmt Michael eru stafræn væðing og gervigreind ekki einungis tól til aukinnar skilvirkni, heldur einnig fyrirbyggjandi aðlögun að kröfum notenda.

„Ég trúi því að við eigum að taka vel á móti nútímatækni eins og gervigreind“ segir Michael með eldmóð og horfir á stafræna væðingu og gervigreind sem nauðsynleg þætti til að halda í við þróun í tónlistar-og menningarskólum.

Þessi nálguntáknar ekki aðeins skilvirkni heldur einnig metnað til að móta framtíð þar sem tónlist og list geta þrifist.  Með stafrænum framförun og hollustu við þarfir notenda, býður Michael upp á áhugaverða framtíð fyrir SpeedAdmin. Þetta snýst ekki bara um að skila skilvirkum lausnum; þetta snýst lika um að móta framtíð þar sem tónlist og list geta blómstrað.

Með Michael við stjórnartauminn hlakkar SpeedAdmin til að gera þessa samhljóma framtíðarsýn að veruleika og halda áfram að vera drifkraftur nýsköpunar í tónlistar- og menninngarskólageiranum.

Book online!