Gagnaöryggi er almennt hugtak yfir þær ráðstafanir sem við getum gert til að vernda okkar gögn og gögn viðskiptavina okkar.
Þessi vernd þarf að vera til staðar bæði innanhúss og utan. Með utan er átt við tölvuþrjóta, sem geta ekki aðeins valdið gagnaleka, heldu einnig skapað áskoranir þegar kemur að uppsetningu og í versta falli lokað SpeedAdmin um tíma.
SpeedAdmin hefur innleitt fjölda ráðstafana til að vernda gögnin sem meðhöndluð eru í kerfinu.
Okkur langar að deila nokkrum af þeim valkostum sem SpeedAdmin býður upp á, og sem stuðla að því að hámarka öryggisstig þitt í SpeedAdmin.
Notendanafn
Fyrsta skrefið í öryggisstillingum er að setja upp öruggt notendanafn. Áður fyrr var eðlilegt að notast við fæðingardag. SpeedAdmin mælir eindregið frá því að slíkt sé notað lengur, þar sem öryggi er ekki nægilegt.
Það eru aðrir staðlar í boði í SpeedAdmin. SpeedAdmin mælir með notkun á netfangi sem notendanafni fyrir forráðamenn og upphafsstafi sem notendanafni fyrir nemendur.
Lykilorðastefna
SpeedAdmin býður upp á mismunandi erfiðleikastig á lykilorðum.
Þessi stig eru skilgreind af eftirfarandi þáttum:
• Hámark innskráningartilrauna – fjöldi skipta sem notandi getur reynt að skrá sig inn með rangt lykilorð áður en síðunni hans er læst.
• Hámarksaldur lykilorðs – Hversu lengi maður getur haft sama lykilorðið áður en maður þarf að skipta.
• Ferill lykilorðs – Hversu oft maður getur endurnotað lykilorðið sitt.
• Innsláttarkröfur – Kröfur um há-/lágstafi, tölustafi og sértákn.
• Lágmarkslengd lykilorðs – Hversu marga stafi lykilorðið inniheldur að lágmarki.

Hér er rétt að taka það fram að frá og með 1. Desember afnemum við lágmarksöryggi í áföngum þar sem við stefnum í átt að hærri öryggistöðlum.
Þetta þýðir að allir gagnagrunnar sem eru í gangi á „Lágmarksöryggi“ verða sjálfkrafa færðir yfir í „Staðlað“. Þetta mun ekki hafa áhrif á núverandi lykilorð, heldur aðeins fyrir uppfærslur á lykilorðum í framtíðinni sem og nýja notendur. Þetta hefur heldur engin áhrif á íslenska skóla því þeir eru nú þegar með staðlað gagnaöryggi.
Það er að svo hægt að stilla mismunandi öryggisstig fyrir mismunandi notendahópa (notendur, kennara, nemendur, forráðamenn). Þannig er hægt að úthluta hærra öryggisstigi fyrir starfsmenn sem eru með aukinn aðgang.
Ein innskráning (SSO)
Ein innskráninger mjög öruggt og notendavænt innskráningarferli sem hægt er að velja í staðinnfyrir eða sem viðbót við hefðbundna innskráningu starfsmanna.
Ein innskráninger auðkenningarferli byggt á SAML2 staðlinum. Það gerir notanda kleift að fáaðgang að mörgum kerfum með sama auðkenninu.
Það þýðir að hægter að skrá sig inn á nokkra reikninga með einu notendanafni og lykilorði.
Í SpeedAdmin ertil dæmis hægt að tengja innskráningu við Ad Azure, ef sveitarfélagið býður uppá slíkt. Venjulega fyrir kennara og ofurnotendur. Þessir notendur þurfa fyrstað skrá sig inn með tveimur þáttum (t.d. lykilorð og SMS) og síðan munSpeedAdmin muna eftir viðkomandi tæki. Svo lengi sem notendur eru skráðir inn ígegnum sama AD munu þeir geta skráð sig inn í SpeedAdmin með því að ýta á einnhnapp.
Það eraukakostnaður fyrir þessa lausn upp á 1000 € (uppsetning) og 350 € (árgjald).