Hvað er framundan – SpeedAdmin Play!

Fyrir stuttu héldum við upplýsingafund fyrir íslenska notendur Speedadmin þar sem farið var yfir stöðu á Play! og það sem er framundan á næstu misserum. Fyrir þau sem komust ekki á fundinn, eða vilja rifja upp það helsta, er hægt að nálgast það hér:

👉 Sjáðu upptöku af fundinum

👉 Skoðaðu glærurnar (PowerPoint)

Þróun Speedadmin Play!

Á fundinum var meðal annars farið yfir þróun á Speedadmin Play og það er ljóst að væntingarnar eru miklar og margir hafa beðið spenntir eftir að geta nýtt sér lausnina. Þróunarferlið hefur tekið lengri tíma en upphaflega var áætlað, en staðan í dag er sú að verkefnið er langt á veg komið. Það er því raunhæft að segja að farið sé að glitta í endann, og við hlökkum til að geta deilt frekari upplýsingum á næstunni.

Fræðsla og veffundir allt árið

Samhliða þróun nýrra lausna er áfram lögð áhersla á að styðja notendur í daglegri notkun kerfisins. Veffundir eru haldnir reglulega og eru aðgengilegir beint í Speedadmin undir Aðstoð > Viðburðir. Þar er farið yfir bæði nýjungar og hagnýta notkun, og markmiðið er að gera notendum auðveldara að nýta Play! sem best í sínu starfi. Þó meirihluti efnisins sé á ensku er lögð áhersla á skýra og aðgengilega framsetningu þannig að sem flestir geti haft gagn af.

Playbook - góður staður til að byrja

Fyrir þau ykkar sem vilja kynnast Speedadmin betur er Playbook-ið góður staður til að byrja. Þar er að finna leiðbeiningar, myndbönd og hagnýt dæmi sem gefa skýra mynd af því hvernig kerfið er notað í daglegu starfi.

Playbook-ið er hugsað sem miðlægur staður fyrir þekkingu og vinnulag í Speedadmin, þar sem hægt er að nálgast efni á einfaldan og aðgengilegan hátt þegar þörf krefur.

Athugið að Playbook-ið er læst með lykilorði, en endilega hafið samband ef þið viljið fá aðgang.

20 ára afmæli Speedadmin

Árið í ár markar jafnframt mikilvæg tímamót, þar sem Speedadmin fagnar 20 ára afmæli. Fyrsti skólinn fór í loftið í ágúst 2006 í Sønderborg í Danmörku, og síðan þá hefur kerfið þróast í nánu samstarfi við notendur. Til að fagna þessum áfanga verður sett af stað viðburðaröð sem spannar tuttugu vikur frá og með viku 32 og út árið, þar sem í hverri viku verður eitthvað nýtt og áhugavert í gangi, bæði á samfélagsmiðlum og innan kerfisins sjálfs.

Book online!